Já þetta voru æðislegir tónleikar og ég hreint út sagt búin að kynnast mun betri hlið á Clapton félaga en áður var því ég þekkti bara örfá lög með honum og þau voru hvað lélegust af lögum kvöldsins (er samt ekki hægt að kalla neitt lélegt á þessum tónleikum)
Verð þó að segja að ég naut þess ekki að "missa af" fyrstu 45 mín af tónleikunum því ég sat föst í röðinni á barinn en hitinn einfaldlega var svo mikill að ég gat ekki hugsað mér að labba í burtu án vatns. Byrjaði að bíða áður en Ellen kláraði (og já hún var flott) svo heilar 75 mín fóru í að bíða eftir að röðin kæmi að mér á barnum og fannst mér það aðeins meira en góðu hófi gegnir.
En takk fyrir mig samt !!!
![]() |
Um 12.000 hlýða á Clapton |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
vá! löng bið.. .gott að heyra að það var gaman
Vilma Kristín , 9.8.2008 kl. 00:12
Röð?
Ég tók ekki eftir neinni röð.
Ég var nú reyndar á VIP svæðinu með sæti og allt það áfengi, vatn og mat sem ég gat í mig látið.
Góðir tónleikar, vantaði bara Layla. Annars toppur.
Tryggvienator, 9.8.2008 kl. 00:15
8 - 10 raðir til að afgreiða 12.000 manns er náttúrulega frekar takmarkað.
Marinó G. Njálsson, 9.8.2008 kl. 00:17
Það voru nú bara 6-8 raðir man ekki allveg, ,, og gekk of hægt fyrir sig ,, ég beið í 90 min eftir 4 bjórglösum
Magnús (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 03:17
Hey Tryggvienator..... shut it ... in your mouth !
Hey (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 04:34
En hvers vegna ekki bara sleppa ölinu í stað þess hanga í 90 min til að komast í ölið. Hins vegar beið ekki nema 2 min eftir að fá vatnsflöskunna mína sem.
Hins vegar vantaði SÁRLEGA SÆTI á þessa tónleika því að á svona tónleikum á maður geta sest niður og notið tónleikanna.
Bjössi (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 10:10
já ég hefði viljað fá vatnið mitt fyrr, fá það kalt og geta sest en maður fær ekki allt í lífinu
Rebbý, 9.8.2008 kl. 12:52
Sammála Rebbý það má alltaf finna að hlutunum og maður fær ekki allt sem maður vill. En tónleikarnir voru MJÖG góðir.
Bjössi (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 14:06
Hefði verið möguleiki að koma með sína eigin vatnsflösku?
Einar Indriðason, 10.8.2008 kl. 00:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.