"ég heyri svo vel .. ég heyri fiskinn tyggja"

Ég var ótrúlega dugleg í gærkvöldi og eldaði handa hálfum heiminum, eða það fannst mér enda ekki vön að elda fyrir 6 fullorðna karlmenn sem taka vel til matar síns.
Annars er þetta hluti af kreppuráðinu mínu ... fer reglulega í mat til fjölskyldu og vina og tek svo bara einstaka sinnum upp spaða og pönnur og sé um að elda handa öllum sem vilja .... helv dýrt að elda endalaust fyrir einn.   Mæli með að aðrir prufi ...

Í kvöld t.d. var ég svo sniðug að troða mér í mat til Vilmu, heimasætunnar og prinsins og hafði það bara gott í eldhúsinu að spjalla við Vilmu á hæsta meðan hún var að elda og vaska upp og almennt sinna heimilinu.   Voðalega notaleg hlutskipti   híhíhí
Í miðju spjallinu var ég svo vitlaus að segja Vilmu að ég hefði gefið fisk greyinu mínu að borða í gærkvöldi þegar ég var búin að slökkva á imbanum og ég hefði heyrði hann tyggja, þetta var svona eins og þegar maður borðar snakk .... krakks krakks krakks.   Þetta kostaði mikil hlátrasköll og gott ef hún er búin að jafna sig þessi elska .... en hún tók af mér það loforð að nota þetta sem titil fyrir bloggfærslu kvöldsins.  
Verð þó að segja þar sem ég næ ekki sambandi við hana í augnablikinu að hún er örugglega núna búin að slökkva á öllu heima hjá sér og komin við fiskabúrið að tékka á sínum. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Magnúsdóttir

Vá, þvílík ofurheyrn. Þú hefðir átt að vera á sjó í gamla daga, hefðir ekki þurft neina talstöð. 

Helga Magnúsdóttir, 4.2.2009 kl. 22:09

2 Smámynd: Rebbý

hehehe - hefði átt að gera það og með bræðurna alla um borð - værum öll moldrík í dag - hehehe

Rebbý, 4.2.2009 kl. 22:11

3 Smámynd: Vilma Kristín

Jebb, búin að sitja og mata fiskana... en það heyrist bara ekkert í þeim borða... bara ekkert...

Vilma Kristín , 4.2.2009 kl. 22:34

4 Smámynd: Rebbý

hlusta Vilma hlusta
í sumar heyri þú þá blómin kannski vaxa

Rebbý, 4.2.2009 kl. 22:52

5 Smámynd: Einar Indriðason

Vilma... ef þú heyrir ekki í fiskunum, þá þarftu að endurtaka tilraunina.  Og aftur... Og aftur... Og aftur... og... allt þar til þú heyrir fiskana jappla á fóðrinu sínu....

Einar Indriðason, 5.2.2009 kl. 00:49

6 Smámynd: Rebbý

... eða springa úr ofáti vegna spennunnar í þér

Rebbý, 5.2.2009 kl. 08:17

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Ég heyri líka svona vel    hafðu það sem best Rebbý mín

Ásdís Sigurðardóttir, 5.2.2009 kl. 22:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband