grái fiðringurinn minn ...

Ég hefði ekki trúað því að ég ætti eftir að játa þetta upp á mig en kannski ég bara þjáist af gráa fiðringnum.
Já ... núna um helgina er ég búin að daðra við 2 menn, annan 8 árum yngri en ég og hinn 10 árum og 10 dögum yngri en ég.  Geri aðrar betur (svona fyrir utan Demi vinkonu).

Skrapp út að halda upp á að eitt ár enn er skollið á mig og hitti annan þeirra (10 árunum yngri) einu sinni enn.  Tæp 2 ár síðan ég hitti hann fyrst og þá reyndar gaf sameiginlegur vinur okkar mér hann og ég mátti gera hvað sem ég vildi við hann .... var þó svo pen að prufa bara aðeins að kyssa hann og lét mig svo hverfa.  
Í gærkvöldi fór hann að tala um kossinn og hélt því fram að hann hefði hugsað til hans reglulega á þessum mánuðum og vildi sjá hvort það væri ennþá jafn gott að kyssa mig (sem það auðvitað er).
Hitti hann svo aftur aðeins í dag hjá sameiginlega vininum okkar og fékk þá að vita að ég væri ekkert of gömul fyrir hann, með ótrúlega falleg augu, kyssilegan munn og bara falleg í alla staði.

Hinn hitti ég í bænum einu sinni enn síðustu helgi og gaf honum loksins númerið mitt og er búin að fá endalaus tilboð frá honum um helgina þar sem tillögur af afmælisfagnaði hafa verið taldar upp.

Ekki leiðinlegt að enda helgina á þessum nótum ....


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Vilma Kristín

:) Þú ert one of a kind! Ég pant endurtaka námskeiðið og sjá hvort þar skili mér lengra en að móðga alla karlmenn sem ég kem nálægt

Vilma Kristín , 7.9.2008 kl. 23:29

2 Smámynd: Rebbý

já - ekki málið með tilraun 2 - þarf að taka Snjóku líka betur inn í námið

Rebbý, 7.9.2008 kl. 23:33

3 identicon

Aldur er afstæður

Jóna Björg (IP-tala skráð) 8.9.2008 kl. 12:17

4 Smámynd: Snjóka

já líst vel á að endurtaka námið og ég lofa að vera ekki sluksinn núna

Snjóka, 8.9.2008 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband