mamma, viltu endilega nýjan tengdason??

Var að horfa á yndislegt atriði í bíómynd sem ég sá alveg að gæti orðið ég eftir nokkur stefnumót af einkamálum í viðbót.

Þarna var maður sem var einmanna og kunni ekki að eiga samskipti við fólk.  Hann skrapp á netið og fann þar að hans mati fullkomin maka og bankar síðan uppá hjá bróðir sínum og segist hafa kynnst konu á veraldarvefnum en hann megi ekki vera með fordóma gagnvart henni þrátt fyrir að hún sé í hjólastól og tali enga ensku.    Bróðirinn lofar því og næsta myndskot er af feimna manninum og kynlífsdúkkunni sem hann keypti sér til að tjá sig við.

Sé mig alveg í anda panta mér "mann" og fara með í mat til mömmu.  Hún myndi sennilega hætta þá að forvitnast hvernig gangi að finna nýjan tengdason handa sér Tounge


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Hí, hí, uppblásinn tengdasonur. Reyndu að fara aftur á deit við fransmanninn og leyfðu okkur svo að heyra hvernig það gengur, vona að BB sendi ekki sérsveitina á ykkur 

Ásdís Sigurðardóttir, 5.7.2008 kl. 14:20

2 Smámynd: Ein-stök

 Þú ættir kannski að færa þetta í tal við mömmu þína "Heyrðu.. ég er búin að finna einn álitlegan.." En ég hef á tilfinningunni að við fengjum ekki eins krassandi sögur af samskiptum þínum við þann uppblásna eins og við fáum af Fransmanninum, Mika og fleirum.. svo.. ekki hætta að deita.. plís  

Ein-stök, 5.7.2008 kl. 15:05

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband