Þetta er nú sennilega furðulegasta boð sem ég hef fengið ....
Skrapp í bæinn eftir Eurovision partyið í vinnunni og eftir að hafa ætt milli staða og staðið í biðröð eftir leigubíl í rúma 2 klukkutíma þá kom þetta "skemmtilega" boð.
Umræður urðu reyndar nokkrar um þetta þar sem ég þurfti að fá skýringu á hvað "little bit sex" væri þrátt fyrir að vera búin að afþakka pent Reyndi mikið að útskýra fyrir Færeyingnum að annaðhvort stundaði fólk kynlíf eða sleppti því, væri ekkert að stunda smá kynlíf eða hluta úr kynlífi eða hvað sem þetta átti að standa fyrir hjá honum .... útskýring fékst ekki.
En þetta var ekki það eina sem var öðruvísi þessa kvöldstundina enda virtist bærinn allur vera í sérkennilegum ham.
Einn rétti mér bíllyklana sína, símann og tóbakið og bað mig að passa þetta allt í vinstri hendinni meðan hann fengi að skoða á mér hægri höndina ....... gott og blessað þangað til ég áttaði mig á að hann vantaði nöglina á mér til að stinga úr tönnunum á sér
Svo var það Duran Duran aðdáandinn sem eftir nokkuð spjall við vildi byrja á föstu með mér en það væri einn galli á ráðhagnum því hann væri ekki vel vaxinn niður því hann hefði bara 10" vin (einn ekki alveg með tommumálin á hreinu) og það tæki ekki nema hálfa mínútu kynlífið hjá honum
Svo var það jafnaldrinn minn sem þoldi ekki kvenfólk og bölsótist yfir þessum óæðri persónum alveg þangað til hann vildi fá að kyssa mig
Já hún var sátt við að vera ein konan sem komst heim kl 7:30 í morgun fyrst þetta var rjóminn af úrvalinu og enn ánægðari þegar hún vaknaði kl 14 og dreif sig niður í vinnu að taka til eftir gleðina.
Núna er þreytan að byrja að hellast yfir aftur svo kvöldið verður tekið með ró um leið og Fylkisáhangendur fara á völlinn ..... vona í fyrsta sinn í sögunni að Fylkir vinni ekki svo þeir komi ekki að fagna fyrir utan hjá mér....
Flokkur: Bloggar | 25.5.2008 | 18:51 (breytt kl. 22:37) | Facebook
Athugasemdir
Hmmmm "little bit sex"... mér dettur nú ýmislegt í hug... held ég sleppi samt að koma með dæmi hér
Vilma Kristín , 25.5.2008 kl. 19:14
Átti þetta að vera boð um "quicky"? Annars hljómar kvöldið þannig að ég er bara alls ekki hissa þó þú hafir verið fegin að komast heim til þín. Ekki langt síðan ég fór á lífið og upplifði ýmislegt fáránlegt og skrítið - þó þú sláir mér nú samt gjörsamlega við hvað það varðar. En ég varð svo fegin að komast í burtu og ákvað að láta ekki sjá mig á "lífinu" á næstunni Spurning hvað "næstan" stendur lengi.. en hún gerir það a.m.k. ennþá
Ein-stök, 26.5.2008 kl. 00:43
Haha! Fyndin svon kvöld... þegar fríkin koma út
Já, rjóminn af úrvalinu er nú ekkert sérstaklega spennandi. Orðinn fremur súr í flestum tilfellum
Laufey Ólafsdóttir, 26.5.2008 kl. 01:12
Hann hefur sennilega verið að bjóða upp á sjortara....
Hrönn Sigurðardóttir, 26.5.2008 kl. 08:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.