Það hefur algjör hvíld átt sér stað í kvöld og bara besta mál.
Freyðibað, andlitsbað, plokkun, litun og svo aðeins að kíkja í tölvuna.
Þeir í sjónvarpinu hafa ruglast á dögum því í kvöld er rólegt og rómantískt á skífan tv sem hentaði mér vel en ég er ekki viss um að allir hafi verið til í þetta á þessu almenna djammkvöldi.
Á morgun á að halda áfram að gera eitthvað fyrir íbúðina, reyna að finna laus á svefnherbergisvandanum og jafnvel bara taka aðeins og rútta til hérna frammi til að breyta umhverfinu aðeins.
Jafnvel kíkja í geymsluna og sjá hvort það leynist kannski eitthvað í gömlu búslóðinni minni sem gæti hentað í herbergið núna. Fljótt að gleymast hvað er í kössum í geymslunni.
Vona að þið eigið góða helgi öll
Athugasemdir
Njóttu helgarinnar mín kæra Rebbý.
Jenný Anna Baldursdóttir, 19.4.2008 kl. 10:06
ég þarf að hafa svona dekurkvöld eigi síðar en í próflok - helst áður - hafðu það gott sæta stelpa
Berglind Elva (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 13:30
GOtt að heyra frá þér. Bara alltaf í tiltekt?? hafðu það gott Rebbý mín, á bara að vera heima í kvöld líka. ?? tökum léttan snúning
Ásdís Sigurðardóttir, 19.4.2008 kl. 13:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.