was upp

Áríðandi skilaboð.

Ég er búin að finna einn sem elskar mig, finnst ég falleg, gáfuð, fyndin, frábær ... bara yndisleg að öllu leiti og hann telur til öll falleg lýsingarorð sem hann kann Grin   Ég er líka það besta sem fyrir hann hefur komið lengi.

Hann sjálfur er þvílíkt krútt, flott vaxinn og yngri en ég  hmmmhmm Tounge
En mikið skelfilega þyrfti hann að vera mállaus

Þegar hann er hérna hjá mér er eins og ég sé stödd í einhverri gangsteramynd frá bandaríkjunum þar sem hann hljómar eins og tvítugur svartur reiður DÚDDI og ég er ekki alveg að meika það lengur.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

heheh þetta heitir að eldast...... kemur fyrir besta fólk og gerir það jafnvel betra

Hrönn Sigurðardóttir, 16.1.2009 kl. 00:00

2 Smámynd: Vilma Kristín

was upp.. .he he... brother... he he he... já, ætli þú sért ekki bara orðin gömul Rebbý!

Vilma Kristín , 16.1.2009 kl. 03:07

3 Smámynd: Einar Indriðason

Þú gætir líka... þegar hann byrjar... snúið þér að honum..... farið að kyssa hann í tætlur... svo hann missi andann... Sagt svo við hann þegar þið komið loksins upp aftur eftir súrefni... "Veistu það .... þú ert alveg ágætur... En... þú talar of mikið... Capís?"  Horft í augun á honum, og kafað svo aftur í kossaflansið.....

(áframhaldið spilist síðan eftir eyranu)

Einar Indriðason, 16.1.2009 kl. 08:44

4 Smámynd: Rebbý

já kannski er ég að eldast - skil samt ekki hvernig það getur verið að gerast
Einar, takk fyrir góð ráð - ef ég nenni að hitta hann einu sinni enn þá kannski prufa ég bara

Rebbý, 16.1.2009 kl. 08:50

5 Smámynd: Einar Indriðason

Ef þetta gengur.... þá fer ég að rukka þig um "ráðleggingargjald" (eða var það skemmtanaskattur... hmm...)   :-)

Einar Indriðason, 16.1.2009 kl. 08:58

6 Smámynd: Rebbý

skemmtanaskattur skal það heita - enda ætti þetta að vera skemmtun

Rebbý, 16.1.2009 kl. 11:15

7 Smámynd: Ásdís Sigurðardóttir

Er þetta samt ekki rosalega gaman ? Góða helgi

Ásdís Sigurðardóttir, 16.1.2009 kl. 12:07

8 Smámynd: Einar Indriðason

Svo hækkar náttúrlega skemmtanaskatturinn... eftir því hversu skemmtilegt þetta er... eða verður....

Einar Indriðason, 16.1.2009 kl. 12:17

9 Smámynd: Gísli Bergsveinn Ívarsson

Gott að sjá þetta.

Ertu þá búin að segja þig úr klúbbnum?

Gísli Bergsveinn Ívarsson, 17.1.2009 kl. 13:52

10 Smámynd: Rebbý

nei ekki aldeilis Gísli minn .... Hr Janúar í vinnunni hjá okkur er að virkja hann aftur svo maður verður að vera félagi áfram

Rebbý, 17.1.2009 kl. 14:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband